Reykjavík RoastersReykjavík Roasters
UM OKKURFUNDARSALURKAFFIÁSKRIFTVEFVERSLUNKAFFIHÚSINHEILDSALANHAFA SAMBAND

Karfan þín

0 vörur

Karfan er tóm.

HEILDSALAN

HEILDSALAN

Við ristum sérstaklega fyrir fyrirtæki sem vilja drekka og bjóða upp á gott kaffi innanhúss. Við vinnum með skrifstofum, kaffihúsum, metnaðarfullum kokkum og jafnvel súkkulaðiverksmiðjum við að bæta gæði kaffisins sem drukkið er, gestum boðið uppá eða notað í framleiðslu á mat og drykk.

PANTA HÉR
bg baunir
RÁÐGJÖF

RÁÐGJÖF

Ef þú ert í þeim sporum að opna kaffihús eða taka skrefið lengra með verkefni sem nú þegar er komið koppinn, getum við hjálpað þér að taka ákvarðanir sem snúa að kaffinu. Við veitum ráðgjöf um val á uppáhellibúnaði, kvörnum og uppsetningu kaffibars svo fátt eitt sé nefnt. Það er margt þarf að huga að og við erum sérfræðingar í því. Í framhaldinu bjóðum við upp á þjálfanir fyrir starfsfólk, búum til uppskriftir og stillum vélar. Við aðstoðum við allt þetta með glöðu geði.

Við ristum sérstaklega fyrir hvern heildsölukúnna fyrir sig, pökkum og sendum stærri sendingar í hverri viku. Einnig bjóðum við upp á vinnusmiðjur, smakkanir og fróðleik fyrir stjórnendur og starfsfólk til að skerpa á kaffiþekkingunni.

Til að taka skrefið í átt að góðu kaffi, er langbest að senda vangaveltur og spurningar á veffangið mail@reykjavikroasters.is og við svörum þér um hæl.

hella kaffibolla
Reykjavík Roasters

© 2018 Reykjavík Roasters (Kaffismiðja Íslands ehf.) | Kárastígur 1, 101 Reykjavík | Brautarholt 2, 105 Reykjavík | kt. 500708-0690 | Vsk.númer: 98806. Terms & Conditions

Byggt á Kling · Verð í ISK© 2026 Reykjavík Roasters